Talaði við hinn mjög svo sérstaka vin okkar á tjaldstæðinu í dag og fékk þær upplýsingar að það kosti 900 kr. á mann á tjaldstæðið, en hugsanlega gefi hann okkur einhvern afslátt " ef þið eruð sætir" (orðrétt haft eftir honum) og högum okkur vel, sem við gerum náttúrulega ekki.
Menn verða svo að tala sig saman í bíla, kannski gott plan að hittast einhver staðar á leiðinni út úr bænum? Og mjög mikilvægt að vera ekki seinir! (Steinn!)
Muna svo að hafa með sér nauðsynlegt dót, það sem mér dettur í hug í augnablikinu er:
Takkaskó
legghlífar
sundföt
föt til skiptana
hlý föt (getur orðið mjög svalt á kvöldin)
Pening (fyrir mat, tjaldstæði, barinn, borga sig út úr fangelsi)
gítar
áfengi
smokka (3 karton ættu að duga)
myndavél
kellingar (ef þær eru hot)
tjald
svefnpoka
korsílett (bara upp á djókið)
þungunarpróf (sjá hvort það verði nokkrar afleiðingar af ferðinni)
fullt af shiti sem ég er að gleyma
Sælir drengir og fólk
Ferðin á Vík er næst á dagskrá en það er að sjálf sögðu hápunktur sumarsins þar sem það er tekið vel á því og við gerðir útlægir úr bænum í heilt ár á eftir þegar átök kvöldsins og næturinnar hafa gengið um garð. Þeir eru svo ánægðir að fá alvöru skemmtileg lið eins og okkur þarna fyrir austan að þeir vilja allt fyrir okkur gera. Ég kannaði því ýmistlegt nauðsynlegt og fékk þessi fínu svör til baka frá þeim. Ég á eftir að hringja í tjaldstæðið og kanna verð á því. Ég reikna með að flestir borði meðan þeir horfa á leikinn um 3. sætið á HM en ef einhverjir vilja grilla verða þeir að gera ráðstafanir sjálfir.
Menn verða að leggja tímanlega af stað, komnir ekki seinna en 30 mín. fyrir leik. Það tekur ca. 2 - 2 1/2 klst að keyra frá Rauðavatni og á Vík, svo gott er að leggja af stað á hádegi. Og endilega tala sig saman með far! Leikurinn verður búinn ca. 17:00 og þá er 1 1/2 klst til að fara í pottinn í sundlauginni, tjalda og annað shit sem menn gætu þurft að gera áður en HM-leikurinn byrjar. Það er í fínu lagi að taka konur og félaga tengda Ástríki með í Vík, bara skemmtilegra að hafa stærri hóp. Set inn meira um ferðina á morgun.
Svör frá DrangsmönnumVið erum nú alltaf til í að leyfa ykkur ráða hvenær leikurinn vegna þess
hversu duglegir þið eruð að djamma hérna eftir leikina, þannig að kl 15:00
hljómar bara ágætlega fyrir okkur og höfum við búningsklefa í
íþróttamiðstöðinni, sundlaugin er opinn til kl 19:00 og kostar 300 kall í
hana.
Hægt er að horfa á leikinn (Úrúgvæ-Þýskaland) á Halldórskaffi sem er staðsettur vestast í
bænum og býður hann uppá mat gegn vægu gjaldi, enda styrkir þessi staður
okkur í deildinni gegn því að liðin éti hjá þeim

Tjaldstæðið er opið og er í fínu standi og maður hefur ekki orðið var við
hana (öskuna) í langan langan tíma. Ég er ekki nógu fróður um grill aðstöðu eða
verðskrá hjá þeim en síminn þar er 487-1345.
Ég held að það sé ekkert ball hérna núna þessa helgina en pöbbinn er opinn eitthvað fram á nótt. (sent stuttu seinna) Það er trúbador á kaffinu hér á laugardagskvöldið, þannig að það verður hér fjör og komu ykkar fagnað í bæinn fagra
Já Hörkukvendið (Henný rauðhærða vinkona okkar) verður á staðnum og örugglega í banastuði, hún spilaði síðasta leik hjá okkur og þótti standa sig býsna vel, hún mætir bara enn einbeittari í næsta leik, versta er að ég held að það sé ekki hægt að
stilla henni upp í byrjunarliðið því hún myndi pottþétt fá rautt spjald á
90 mín.
Annars verður bara gaman að fá ykkur og endilega spurðu bara ef einhverjar
spurningar vakna.
kv. Ágúst